FISKIDAGURINN Á DALVIK ©MYND ÞORGEIR BALDURSON
Samherji hf. býður gesti Fiskidagsins mikla hjartanlega velkomna til Dalvíkur. Við erum stolt af því að taka þátt í þessari einstöku hátíð og að fá tækifæri til þess að kynna fyrir Íslendingum grunnatvinnuveginn okkar útgerð og fiskvinnslu. Á Dalvík fer fram mikil verðmætasköpun og framleiddar eru fiskafurðir fyrir kröfuhörðustu neytendur. Fyrir einstaka gestrisni Dalvíkinga fá Íslendingar nú að njóta afrakstur vinnu þessa duglega fólks. Ekki síst vonumst við til að efla vitund ungra Íslendinga á því hvað fiskur er góður og hollur. Heimild Samherji.is